FYRIRTÆKIÐ | FUGLARNIR OKKAR | ELLIÐAHVAMMUR | HEIÐARBÆR 1 | HJALLAKRÓKUR | NESLÆKUR | REYKJABÚIÐ
FJÖLSKYLDUBÚIÐ Í ELLIÐAHVAMMI
Þorsteinn Sigmundsson er einn af frumbyggjunum í Kópavogi en þegar hann og Alísa heitin, eiginkona hans, hófu búskap í Elliðahvammi var þar „bara skúr, grjót, holt og móar.“ Þorsteinn rekur dæmigert lítið fjölskyldubú með afkomendum sínum en börnin hans, Aðalheiður og Sigmundur, starfa við búið ásamt mökum sínum og börnum. Meira um Elliðahvamm

FJÖLSKYLDUBÚIÐ Á HEIÐARBÆ 1
Að Heiðarbæ I í Þingvallasveit búa hjónin Jóhannes Sveinbjörnsson og Ólöf Björg Einarsdóttir ásamt börnum sínum þremur, Svanborgu, Sveinbirni og Steinunni. Á Heiðarbæ er rekið blandað bú með sauðfé, kjúklinga og silungsveiði í Þingvallavatni. Þau hjón eru bæði alin upp við búskap en Jóhannes er með doktorspróf í fóðurfræði og Ólöf Björg með mastersgráðu í búfjárfræði. Ólöf Björg vinnur alfarið á búinu en Jóhannes er í hlutastarfi hjá Landbúnaðarháskólanum við kennslu og rannsóknir. Meira um Heiðarbæ 1
BÓNDINN Í HJALLAKRÓKI
Jón Ögmundsson rekur búið að Hjallakróki þar sem hann býr ásamt eiginkonu sinni, Elínu Hörpu Jóhannsdóttur, og tveimur dætrum hennar, Andreu Ösp og Katrínu. Jón hóf kjúklingaræktun að Hjallakróki árið 1994 en var áður með garðyrkjustöð í Hveragerði. Hann hefur ekki sagt alveg skilið við grænmetisræktunina, því jafnframt kjúklingaeldinu ræktar hann gulrófur, kartöflur, gulrætur og fleira grænmeti. Meira um Hjallakrók
BÆNDURNIR Á NESLÆK Í ÖLFUSI
Neslækur er félagsbú þeirra Kristjáns Karls Gunnarssonar að Rauðalæk og Ögmundar Jónssonar í Ásnesi í Ölfusi. Þeir félagar stofnuðu fyrirtækið árið 2013 og þó að stutt sé síðan eru þeir ekki algjörir nýgræðingar í kjúklingarækt. Báðir hafa þeir unnið fyrir Jón Magnús og Kristínu á Reykjum og Ögmundur er sonur Jóns í Hjallakróki og tók hann þátt í bústörfunum með föður sínum á uppvaxtarárunum. Meira um Neslæk
FJÖLSKYLDUBÚIÐ Á REYKJABÚINU
Jón Magnús Jónsson og Kristín Sverrisdóttir tóku alfarið yfir rekstur Ísfugls árið 2012 en þau búa á Suður-Reykjum I í Mosfellsbæ. Jón Magnús er fæddur á Suður-Reykjum þar sem fjölskylda hans hefur verið í alifuglarækt síðan á fyrri hluta síðustu aldar en Kristín, sem er Reykvíkingur, kynntist sveitastörfum frá barnsaldri hjá móðursystur sinni á Oddgeirshólum í Flóa. Þau eiga fjögur börn, Hrefnu, Maríu Helgu, Jón Magnús og Sverrir. Dæturnar eru flognar úr hreiðrinu en synirnir taka mikinn þátt í búskapnum. Meira um Reykjabúið