FRÉTTIR

16.11.2018 / Ísfugl skarar framúr níunda árið í röð

 

Síðan árið 2010 hefur Credit info gefið íslenskum fyrirtækjum viðurkenninguna “Fyrirmyndar fyrirtæki” uppfylli þau strangar kröfur. Við erum afar stolt af því að hafa fengið þessa viðurkenningu öll árin og fögnum því um þessar mundir okkar níundu viðurkenningu. Ísfugl er eitt af 72 fyrirtækjum sem hafa fengið viðurkenninguna öll árin níu.

 

26.01.2018 / Ísfugl er framúrskarandi og fyrirmyndarfyrirtæki

 

Við hjá Ísfugli erum stolt af því að vera framúrskarandi fyrirtæki áttunda árið í röð samkvæmt kröfum Credit info. Ísfugl tilheyrir því 2,2% íslenskra fyrirtækja sem standast þær kröfur. Og ekki erum við síður stolt af “Fyrirmyndarfyriræki í rekstri” viðurkenningunni frá Viðskiptablaðinu og Keldunni.

 

 

 

 

 

 

 

 

26.08.2017 / Í túninu heima

Helgina 26.-27. ágúst fer fram bæjarhátíðin “Í túninu heima” í heimabæ okkar, Mosfellsbæ. Kjúklingafestivalið er á sínum stað klukkan 14:00 á laugardeginum við Varmá. Við hjá Ísfugli látum nokkra regndropa ekki stoppa okkur og bjóðum fólki á ferðinni heita kjúklingasúpu að hætti Nings og nýgrillaða kjúklingaleggi. Bærinn okkar fagnar 30 ára afmæli um þessar mundir og er því hátíðin enn glæsilegri en venjulega. Smelltu hér til að kynna þér dagskránna. Sjáumst!

26.06.2017 / Ísfugl og Klúbbur matreiðslumeistara í samstarf

Þann 19.júní var undirritaður samstarfssamningur milli Ísfugls og Klúbbs matreiðslumeistara og Kokkalandsliðsins. Samningurinn er til tveggja ára og felur í sér heilmikið samstarf. Okkur hjá Ísfugli þykir mikill heiður að okkar frábæra Kokkalandslið komi til með að nota Ísfuglskjúkling og kalkún í sína matreiðslu.

Á myndinni eru frá vinstri: Árni Þór Arnórsson ritari KM, Björn Bragi Bragason forseti KM, Jón Magnús Jónsson eigandi Ísfugls og Kristín Sverrisdóttir eigandi Ísfugls

19.06.2017 / Ísfuglarnir í breyttum umbúðum

Við hjá Ísfugli erum gríðarlega stolt af bændunum okkar. Þess vegna bjóðum við nú mun aðgengilegri og ítarlegri upplýsingar um hver ræktar kjúklinginn hverju sinni. Þetta er hrein viðbót við s.k. rekjanleikanúmer sem framleiðslan hefur verið merkt með til fjölda ára.

Neytendur geta nú auðveldlega séð hvaða Ísfuglsbóndi ræktar kjúklinginn þeirra og einnig nýtt sér QR kóða á umbúðunum sem geymir enn frekari upplýsingar um viðkomandi Ísfuglsbónda.

 

26.08.2016 / Kjúklingafestivalið í Mosfellsbæ um helgina

Helgina 27.-28. ágúst fer fram bæjarhátíðin “Í túninu heima” í heimabæ okkar, Mosfellsbæ. Kjúklingafestivalið er á sínum stað klukkan 14:00 á laugardeginum við Varmá. Ísfugl mun bjóða gestum og gangandi uppá grillaðan kjúkling og ljúffenga súpu að hætti Nings. Bæjarhátíðin okkar verður glæsilegri með hverju árinu og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Smelltu hér til að kynna þér dagskránna. Sjáumst!
festival2016

20.07.2015 / Framleiðendur vikunnar

reykjabuid_ps2

Þessa vikuna erum við að vinna kjúkling frá Hjallakrók í Ölfusi og Heiðarbæ II í Þingvallasveit sem er á vegum Reykjabúsins. Fylgstu með framleiðendum vikunnar á Facebooksíðu Ísfugls!

28.08.2015 / Ísfugl verður á Kjúklingafestivalinu

Helgina 29.-30. ágúst fer fram bæjarhátíðin “Í túninu heima” í heimabæ okkar, Mosfellsbæ. Ísfugl mun að sjálfsögðu taka þátt í Kjúklingafestivalinu sem verður klukkan 14:00 á laugardeginum við íþróttamiðstöðina að Varmá. Ísfugl mun bjóða gestum og gangandi uppá grillaða kjúklingabita og heita kjúklingasúpu í samstarfi við Nings.

31.10.2014 / Ísfugl í flokki A-fyrirtækja hjá MAST

Ísfugl er nú kominn upp í flokk A-fyrirtækja hjá Matvælastofnun (MAST), sem áhættuflokkar allar starfsstöðvar þar sem unnin eru matvæli úr dýraríkinu. Einkunnin A þýðir að fyrirtækið viðhefur bestu mögulegu starfshætti til að framleiða örugg matvæli. Við mat á áhættu framleiðslunnar fyrir matvælaöryggi er horft til þriggja áhættuþátta:
1) tegundar vinnslunnar og hráefnisins sem unnið er með,
2) stærðar fyrirtækisins eða vinnslunnar
3) og neytendahópsins sem markaðssett er fyrir.

Við, eigendur og starfsfólk Ísfugls, erum stolt af að tilheyra hópi A-fyrirtækja.

03.10.2014 / NÝJAR MERKINGAR

Eins og glöggir neytendur hafa tekið eftir eru nú komnar nýjar merkingar á alla ferskvöru Ísfugls, auk þess sem gamla góða Ísfuglsmerkið hefur fengið andlitslyftingu. Við leggjum ríka áherslu á að neytendur geti séð á umbúðum vörunnar frá hvaða búi hún kemur. Allt ferskt og óunnið kjöt frá Ísfugli er rekjanlegt til bónda og nú má sjá nafn búsins á öllum ferskvöruumbúðum okkar.
Hér á vefnum  geta neytendur svo aflað sér frekari upplýsinga um bóndann sem ræktað hefur þann Ísfuglskjúkling sem keyptur er hverju sinni.

19.09.2014 / Ísfugl er kominn á Facebook!

Núna er hægt að fylgjast með Ísfugli á Facebook.
Á Facebook-síðunni munum við deila girnilegum uppskriftum, tilboðum og fróðleik með viðskiptavinum okkar.

08.09.2014  /  Nýr vefur!

Nýr vefur Ísfugls er kominn í loftið. Hér má finna upplýsingar um fuglana okkar, sem ræktaðir eru með umhyggju og án fúkkalyfja, um vörurnar og vinnslu þeirra, um fyrirtækið – og síðast en ekki síst kynnum við bændurna sem standa að baki Ísfugli.